Ísland vaknar 19.júlí 06:45- 09:00

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: fim. 19. júl. 2018
Lengd: 2 kl., 14 mín., 37 sek.
Lýsing:

Ísland vaknaði á þessum fallega fimmtudegi. Í stúdíóinu voru þau Rikka, Svavar Örn og Ásgeir Páll en þeir síðarnefndu voru að leysa þá Loga og Rúnar Frey af. 

Við byrjuðum á morgunspjallinu þar sem við fórum yfir húðumhirðu og hvernig Ásgeir Páll hefði það í andlitinu eftir að hafa farið í demantahúðslípun.

Svavar Örn opnaði sig um þá megrunarkúra sem hann hefur prófað og sagði okkur söguna af því þegar hann féll á Ketó kúrnum. Lukka Pálsdóttir fræddi okkur um ketógeníska mataræðið og gaf hlustendum góð ráð varðandi fyrstu skrefin.

Stjórnin kom og frumflutti nýtt lag, við heyrðum í Margréti Pálu, höfund Hjallastefnunnar og fórum að sjálfsögðu í spurningaleikinn Svaraðu rétt til að vinna eins og alltaf á fimmtudögum

Í loftinu núna
Endalaus tónlist

Veldu frelsi