Whitney kveið viðbrögðum Dolly

Samsett mynd: John M. Smith, Chris Delmas.

Söngkonan dáða óttaðist eitt umfram allt annað eftir að hún hljóðritaði sinn heimsfræga stórsmell.

Þegar Whitney Houston tók upp hina goðsagnakenndu útgáfu af laginu „I Will Always Love You“ fyrir kvikmyndina The Bodyguard árið 1992 óttaðist hún aðeins eitt: Hvað höfundinum, Dolly Parton, myndi finnast.

Í viðtali við Rolling Stone viðurkenndi söngkonan að hún hefði borið mikinn kvíðboga fyrir viðbrögðum kántrídrottningarinnar. Hún vildi heiðra upprunalega lagið frá árinu 1973 en setja um leið sinn eigin svip á útsetninguna og flutninginn. Allar áhyggjur hurfu eins og dögg fyrir sólu þegar stjörnurnar töluðu loks saman í síma.

Dolly var yfir sig hrifin, orðlaus af aðdáun og sagði flutninginn hreint stórkostlegan. Lagið sló öll met, sat 14 vikur á toppi Billboard-listans og batt þær órjúfanlegum vináttuböndum.

mbl.is
Í loftinu núna
Endalaus tónlist