Stjarnan á gjörgæslu

Lionel Richie

Tónlistarmaðurinn Lionel Richie, sem er 77 ára gamall, var lagður inn á gjörgæsludeild í St. Louis í Missouri um helgina. Söngvarinn leitaði sjálfur á sjúkrahús eftir tónleika sína á The Muny til að gangast undir rannsóknir.

Áhorfendur tóku eftir því að ekki var allt með felldu í lok sýningarinnar þegar Richie þurfti að fá stól á sviðið til að klára lokalagið, smellinn „All Night Long“. Samkvæmt heimildum TMZ er talið að mikill vökvaskortur hrjái stjörnuna, en líðan hans er sögð stöðug og vonast er til að hann útskrifist í dag.

Þetta er annað heilsufarsáfall söngvarans í sumar, en hann þurfti einnig að hætta tónleikum í Minnesota í júní vegna svima.

mbl.is
Í loftinu núna
Endalaus tónlist