Grjótharður á sviðinu

Rick Springfield á sviðinu.
Rick Springfield á sviðinu. Jason Kempin AFP

Rokkgoðið Rick Springfield, sem nýverið fagnaði 77 ára afmæli sínu, hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum eftir að hann reif sig úr að ofan á tónleikum á Palms Casino Resort í Las Vegas.

Þar flutti hann sinn þekktasta smell, „Jessie's Girl“ frá 1981, aðeins klæddur í svartar buxur og með gítarinn um öxl. Myndband af uppákomunni fór eins og eldur í sinu um netið þar sem aðdáendur dásömuðu ótrúlegt form söngvarans sem virðist ekki eldast um dag.

Springfield segist æfa daglega til að halda sér í formi og er óhræddur við að henda skyrtunni. Að hans sögn er það einmitt rokktónlistin og sviðsframkoman sem heldur honum ungum, enda líður honum enn eins og tvítugum manni í anda.

 

Jason Kempin.
mbl.is
Í loftinu núna
Endalaus tónlist