Dýrkeypt höfnun

Tom Petty á tónleikum 2010
Tom Petty á tónleikum 2010 Wikimedia Commons Musicisentropy

Rokkgoðsögnin Tom Petty sá síðar mikið eftir því að hafa hafnað laginu „The Boys of Summer“ árið 1984. Gítarleikari hans, Mike Campbell, hafði samið lagið sérstaklega fyrir Heartbreakers og plötuna Southern Accents, en Petty fannst það ekki passa inn í hljóðheiminn.

Upptökustjórinn Jimmy Iovine kom Campbell þá í samband við Don Henley, söngvara Eagles, sem heillaðist samstundis og samdi textann í bílnum sínum. Lagið fór á topp vinsældalista, færði Henley Grammy-verðlaun og er í dag talið eitt allra besta rokklag sögunnar. Campbell rifjaði síðar upp að Petty hefði játað mistökin og óskað þess að hafa ekki látið smellinn renna sér úr greipum.

Don Henley og Joe Walsh úr The Eagles á tónleikum.
Don Henley og Joe Walsh úr The Eagles á tónleikum. AFP
mbl.is
Í loftinu núna
Endalaus tónlist