Af hverju viljum við breyta öðru fólki?

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: fim. 28. jún. 2018
Lengd: 9 mín., 28 sek.
Lýsing:

Elínrós Líndal ráðgjafi segir að það sé allt of algengt að fólk reyni að breyta mökum sínum.  Þegar við lítum á maka okkar eða sambýlisfólk eins og gömul hús sem við gerum upp kann það sjaldnast góðri lukku að stýra segir ráðgjafinn.  Ástæðan fyrir þessari áráttu okkar getur verið margskonar.    Slæm sjálfsmynd, óöryggi og skortur á ást var á meðal þess sem Elínrós nefndi í viðtali í Ísland Vaknar á K100 í morgun.

Neftóbaksfíkn veldur vandræðum í sambandi

Annar þáttastjórenda viðurkenndi að glíma við fíkn í neftóbak sem konan hans kvartaði stöðugt undan.  „Hún talar stöðugt um að íbúðin sé öll útsett í sóðalegu neftóbaki hjónarúmið sé eins og kattasandsdallur, efri vörin útbýjuð blautum tóbakstaum og ég þurfi að hætta þessum ósóma”, sagði Ásgeir Páll og spurði Elínrósu hvort konan hans ætti ekki að hætta að reyna að breyta þessum ósóma hans.  Svar ráðgjafans kom honum greinilega í opna skjöldu en það má heyra með því að hlusta á viðtalið hér að neðan.

Veldu frelsi