Áskorun - Watermelon Sugar og Kötukvæði í eina sæng

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: fös. 10. júl. 2026
Lengd: 4 mín., 16 sek.
Lýsing:

Föstudagsáskorunin í morgunþættinum heldur áfram að slá í gegn og vikulega horfa tugir þúsunda á myndböndin á samfélagsmiðlum.

Áskorunin gengur út á að Regína Ósk þarf að syngja þekkt erlent lag við texta úr þekktu íslensku lagi. Það hljómar einfalt á pappír en reynir oft verulega á bæði takt, laglínu og útsjónarsemi.

Undirbúningurinn er í höndum Ásgeirs Páls sem segist leggja mikla vinnu í að finna réttu samsetninguna og láta íslenska textann falla sem eðlilegast að erlenda laginu áður en Regína fær áskorunina í hendurnar. Oft tekst það ekki fullkomnlega en er alla jafna skemmtilegt verkefni.

Að þessu sinni söng Regína stórsmellinn Watermelon Sugar, sem Harry Styles gerði heimsfrægan, við textann úr hinu sígilda íslenska lagi Kötukvæði. Útkoman var eins óvænt og hún var skemmtileg og vakti að vanda mikla lukku í hljóðverinu.

Sjáðu hvernig Regínu tókst til í Föstudagsáskorun vikunnar.

Í loftinu núna
Endalaus tónlist

Veldu frelsi