Manstu þegar þetta var talið alveg eðlilegt?

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: fös. 10. júl. 2026
Lengd: 3 mín., 32 sek.
Lýsing:

Hversu margt gerðum við áður sem myndi vekja furðu – eða jafnvel hneykslun – í dag? Það var umræðuefnið í morgunþættinum á K100 þar sem Ásgeir Páll, Regína og Jón Axel fóru í skemmtilegt ferðalag aftur í tímann og rifjuðu upp ýmsa hluti sem þóttu algjörlega eðlilegir fyrir nokkrum áratugum.

Þar var meðal annars rætt um að margir keyrðu bíla án þess að spenna öryggisbelti, að reykingar væru leyfðar víða á almannafæri og jafnvel innandyra, og að fólk svaraði símanum án þess að hafa minnstu hugmynd um hver væri að hringja. Það var einfaldlega ekki hægt að sjá símanúmer þess sem hringdi.

Þríeykið í Ísland vaknar velti því fyrir sér hversu hratt samfélagið hefur breyst og hvernig margt sem þótti sjálfsagt fyrir ekki svo löngu síðan væri nánast óhugsandi í dag. Reglur, tækni og viðhorf hafa tekið stakkaskiptum og margt sem áður var daglegt brauð er nú orðið hluti af nostalgíunni.

Umræðan vakti bæði hlátur og eftirtekt enda eiga flestir einhverjar minningar um hluti sem voru „bara svona“ á sínum tíma, en yngri kynslóðir eiga jafnvel erfitt með að trúa því að þetta hafi raunverulega verið hluti af hversdagslífinu.

Hvaða hlutir dettur þér fyrst í hug sem þóttu eðlilegir „í gamla daga“ en myndu líklega ekki ganga í dag?

Í loftinu núna
Endalaus tónlist

Veldu frelsi