Björk Jakobs og Salka Sól fóru á kostum

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: mið. 10. jún. 2026
Lengd: 8 mín., 37 sek.
Lýsing:

Leikkonurnar Björk Jakobsdóttir og Salka Sól Eyfeld heimsóttu morgunþáttinn í dag og sögðu frá nýrri uppfærslu á vinsælu sýningunni Bíddu bara, sem nú snýr aftur á svið í Bæjarbíói undir nafninu Bíddu bara – ÞETTA REDDAST.  Selma Björns gat því miður ekki mætt með þeim stöllum í viðtalið en hún er hluti af sýningunni.

Sýningin sló í gegn á sínum tíma en nú hafa árin liðið og lífið tekið ýmsum breytingum. Salka er komin með tvö börn og hefur að eigin sögn ekki sofið út í sex ár, Selma Björnsdóttir glímir við breytingaskeiðið og Björk er orðin amma sem fær nú ráðleggingar frá börnunum sínum um barnauppeldi.

Þær sögðu að nýja sýningin tæki á hversdagslegum áskorunum lífsins af húmor, einlægni og sjálfsgagnrýni. Um er að ræða sketsa- og uppistandssýningu með frumsömdum lögum í anda upprunalegu sýningarinnar.

Frumsýning verður í Bæjarbíói 8. október og samkvæmt þeim stöllum verður ekkert tabú látið óáreitt. Markmiðið er einfalt: að fá fólk til að hlæja að sjálfu sér og lífinu eins og það er í raun.

Veldu frelsi