Anita Daxa - Að semja lagið var eins og að fara í sálfræðimeðferð

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: fim. 4. jún. 2026
Lengd: 9 mín., 52 sek.
Lýsing:

Söngkonan og lagahöfundurinn Anita Daxa stimplar sig inn í íslenskan tónlistarmarkað um þessar mundir.  Hún heimsótti Ísland vaknar með nýtt lag í farteskinu sem hún hefur nýverið gefið út.  Í spjalli við morgunteymið segist hún nota lífsreynslu sína sem innblástur í lagasmíðum.  Það á einmitt vel við í laginu Vesturbæjarlaug sem er fyrsta lagið sem hún gefið út.  Lagið samdi hún eftir að hafa hitt fyrrverandi kærasta sinn í Vesturbæjarlauginni.  Í þeirri merku sundlaug hafa lengi staðið yfir alls kyns lagfæringar og framkvæmdir og það bjó hjá Anítu til einhvers konar hugrenningatengsl um að sambandið þeirra hafi verið eins og Vesturbæjarlaug, stöðugt í þörf fyrir lagfæringar.  Anita hefur ekki langt að sækja tónlistarhæfileikanna, enda dóttir söngkonunnar og útvarpskonunnar Regínu Óskar.  Hér er á ferðinni áhugavert viðtal sem hægt er að hlusta á hér.

Veldu frelsi