Atli Jamil boðar gríðarlega stemmungu á torfærunni um helgina

Þáttur: Ásgeir
Dagsetning: fös. 29. maí. 2026
Lengd: 5 mín., 21 sek.
Lýsing:

Það verður nóg um að vera hjá torfæruáhugafólki um helgina þegar torfæran fer fram á Suðurlandi og spennan fer stigvaxandi fyrir eitt vinsælasta sjónarspil íslenskra akstursíþrótta. Torfæran fer fram við Laugavatnsafleggjara í Grímsnesi og hefst fjörið kl.10:00 Ásgeir Páll sló á þráðinn til torfærukappans Atla Jamil Ásgeirssonar og spurði hann út í keppnina og því sem bíður áhorfenda um helgina. Torfæra hefur lengi verið stór hluti af íslenskri mótorsportmenningu og laðar jafnan að sér fjölda áhorfenda sem mæta til að fylgjast með öflugustu torfærubílum landsins takast á við krefjandi brautir og brattar brekkur.

Atli Jamil er einn þekktasti torfærumaður landsins og hefur náð eftirtektarverðum árangri í greininni. Hann varð meðal annars Noregsmeistari í torfæru árið 2019 eftir sterkt tímabil þar sem hann keppti á bílnum Thunderbolt og tryggði sér titilinn í lokaumferð mótsins. Þá hefur hann einnig verið meðal fremstu ökumanna í NEZ-keppnum og íslenskri torfæru um árabil, auk þess að keppa undir merkjum Jamil Racing.

Atli er jafnframt mikill vinur K100 og er ávallt reiðubúinn að segja þar frá reynslu sinni úr torfærunni og ástríðu sinni fyrir akstursíþróttum.  Það er mikill fengur fyrir hvern fjölmiðil að eiga aðgang að manni eins og Atla, enda er hann eins og áður segir einn af okkar fremstu akstursíþróttamönnum. Ef þú misstir af spjallinu við Atla í morgun þá er vel þess virði að smella á hljóðbrotið sem fylgir greininni – og fyrir þá sem elska bensínlykt, kraft og spennu er torfæran um helgina eitthvað sem ekki má missa af.

Veldu frelsi