Síðasta vika með augum Jax

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: þri. 12. maí. 2026
Lengd: 3 mín., 51 sek.
Lýsing:

Það var líf og fjör í morgunþættinum í gær þegar Jón Axel frumsýndi nýjan dagskrárlið sem verður fastur liður á mánudögum hér eftir.

Í liðnum fer Jón Axel yfir helstu fréttir og umræðuefni síðustu viku í skoplegri einræðu þar sem hann blandar saman fréttaskýringu, hnyttnum athugasemdum og léttum húmor í anda bandarískra kvöldþáttarstjórnenda. Þar fær allt sitt – allt frá stórum fréttamálum yfir í furðuleg internetaugnablik og það sem þjóðin var að tala um hverju sinni.

Stemningin minnti marga á klassíska opnun í amerískum late-night þáttum þar sem þáttastjórnandinn fer yfir vikuna með hraða, húmor og skemmtilegum athugasemdum. Jón Axel fór á kostum í fyrsta þættinum og þáttastjórnendur áttu erfitt með að halda aftur af hlátrinum á köflum.

 

Nýr liðurinn virðist ætla að falla vel inn í morgunþáttinn enda blandast þar saman fréttir, grín og létt yfirferð yfir það sem hefur verið efst á baugi hverju sinni.

Veldu frelsi