Hvað gefur ykkur "ick"?

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: þri. 12. maí. 2026
Lengd: 6 mín., 11 sek.
Lýsing:

Það skapaðist bæði fyndin og mjög áhugaverð umræða í morgunþættinum í dag þegar opnað var fyrir símann og hlustendur spurðir: „Hvað gefur ykkur ick?“

Til að byrja með reyndu þáttastjórnendur að finna gott íslenskt orð yfir hugtakið „ick“, sem hefur verið mikið notað á samfélagsmiðlum undanfarin ár til að lýsa þessari óþægindatilfinningu sem getur komið gagnvart einhverjum – oft snemma í ástarsambandi.

Eftir nokkrar vangaveltur hringdi hlustandi inn og hjálpaði til við að leysa málið. Sama kona sagði jafnframt frá því að hún hefði oft upplifað þessa tilfinningu snemma í samböndum og að hún hefði yfirleitt endað með því að slíta sambandinu þegar hún fann fyrir henni.

Það sem vakti athygli þáttastjórnenda var að hún gat ekki endilega bent á eitt ákveðið atriði sem olli þessari tilfinningu. Stundum voru það litlir hlutir, ákveðin hegðun eða einfaldlega eitthvað sem ekki var hægt að útskýra almennilega – en þegar tilfinningin kom þá vissi hún að sambandið myndi ekki ganga upp.

Ef þú misstir af þessari stórskemmtilegu umræðu þá er vel þess virði að hlusta á hljóðbrotið sem fylgir greininni. Þar komu bæði fyndin, vandræðaleg og mjög einlæg dæmi sem margir eiga örugglega eftir að tengja við.

 
 
 

Veldu frelsi