66°N heldur upp á hundrað ára afmæli

Þáttur: Ísland vaknar
Dagsetning: mið. 6. maí. 2026
Lengd: 6 mín., 21 sek.
Lýsing:

Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66°Norður, mætti í morgunþáttinn Ísland vaknar í dag og sagði frá sérstöku verkefni sem fyrirtækið stendur að í tilefni af 100 ára afmæli sínu.

Afmælisverkefnið felst í einstakri ljósmyndasýningu þar sem 100 einstaklingar fæddir á árunum 1926–2026 eru myndaðir – einn fulltrúi fyrir hvert ár í sögu fyrirtækisins. Hver einstaklingur klæðist sinni eigin flík frá 66°Norður og þannig er sögð bæði saga fólksins og fyrirtækisins sem hefur fylgt Íslendingum í gegnum kynslóðir.

66°Norður hefur í raun orðið hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar. Fyrirtækið, sem hóf starfsemi sína fyrir heilli öld, hefur þróast úr því að framleiða hlífðarfatnað fyrir íslenska sjómenn yfir í að verða eitt þekktasta vörumerki landsins. Líklega eiga flestir Íslendingar að minnsta kosti eina flík frá fyrirtækinu – hvort sem það er klassísk loppa, úlpa eða göngufatnaður sem hefur staðist íslenskt veður ár eftir ár.

Sýningin verður sett upp á HönnunarMars í HERMA við Hverfisgötu og gefur gestum tækifæri til að sjá hvernig saga fyrirtækisins og saga Íslendinga hafa fléttast saman í gegnum heila öld.

 
 
Afmæli laganna - 1998 (11.5.2026) — 00:14:53
Gleymdar perlur (8.5.2026) — 00:04:14
Þóra er snjókallahönnuður (8.5.2026) — 00:02:32
Kata - Faded moments (7.5.2026) — 00:03:49

Veldu frelsi