Óska eftir kynlífssögum

Þáttur: Þór Bæring síðdegis
Dagsetning: fös. 13. mar. 2026
Lengd: 3 mín., 56 sek.
Lýsing:

Vin­kon­urn­ar Lydía Ósk Ómarsdóttir og Gulla Bjarna eru um­sjón­ar­menn hlaðvarps­ins Í al­vöru talað! Vinkonunum er ekkert heilagt en á næstunni ætla þær að fjalla um kynlíf en þeim vantar kynlífssögur frá fólki. Gulla mætti í Síðdegisþáttinn á K100 til Þórs Bærings og sagði þær stöllur vilja létta aðeins á umræðunni, sem þeim finnst oft vera full klínísk og þung.

„Okkur langar að tala um kynlíf á léttu nótunum,“ sagði Gulla og benti á að Íslendingar virtust vera mjög tvískiptir þegar kæmi að þessu málefni; fólk væri annaðhvort til í að ræða allt eða alls ekkert. Viðbrögðin hafa ekki staðið á sér og segir Gulla dónaskapinn þegar byrjaðan að flæða í pósthólfið, en þær óska eftir enn fleiri sögum frá hlustendum.

Veldu frelsi