K100 | Fréttir | 15.4.2021 | 18:30
Hér tekur þú þátt í síðasta bingóinu fyrir sumarfrí
Siggi Gunnars og Eva Ruza stýra sannkallaðri fjölskyldugleði hér á mbl.is

Eggert Jóhannesson
Siggi Gunnars og Eva Ruza stýra sannkallaðri fjölskyldugleði hér á mbl.is þegar þau færa landsmönnum sjóðandi heitar bingótölur beint heim í stofu. Fjöldi vinninga er í boði og er hægt að nálgast útsendinguna hér að neðan.
Siggi og Eva hafa tekið á móti fjölda tónlistarfólks í þáttunum í vetur en þátturinn í kvöld er síðasti bingóþátturinn fyrir sumarfrí. Það hefur ekki verið gefið upp hvaða tónlistaratriði verða á dagskrá og mun það því koma þátttakendum og bingóstjóranum sjálfum á óvart.
Leikreglur, bingóspjöld og útsendinguna má nálgast með því að smella hér.
Bein útsending hefst klukkan 19.00 og hægt er að fylgjast með henni hér og á rás 9 hjá Símanum.